Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 15. janúar 2019 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fjórir leikmenn semja við Fjarðabyggð
Mynd: Fjarðabyggð
Fjórir ungir leikmenn skrifuðu undir samninga við Fjarðabyggð í gær en þeir koma allir úr uppeldisstarfinu fyrir austan.

Strákarnir eru allir fæddir 2003 og eiga ekki leiki að baki fyrir meistaraflokk.

Þeir heita Bjartur Hólm Hafþórsson, Freysteinn Bjarnason, Hákon Þorbergur Jónsson og Oddur Óli Helgason.

Með þeim á myndinni hér til hægri eru Bjarni Ólafur Birkisson og Dragan Stojanovic þjálfari Fjarðabyggðar.
Athugasemdir
banner
banner
banner