Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 15. janúar 2019 20:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fótbolta.net mótið: Njarðvík og Víkingur Ó. gerðu jafntefli
Andri Fannar skoraði mark Njarðvíkur.
Andri Fannar skoraði mark Njarðvíkur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Njarðvík 1 - 1 Víkingur Ó.
1-0 Andri Fannar Freysson ('49)
1-1 Kristófer James Eggertsson ('73)

Njarðvík og Víkingur Ólafsvík skildu jöfn er liðin mættust í B-deild Fótbolta.net mótsins í kvöld. Leikurinn fór fram í Reykjaneshöllinni.

Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði Andri Fannar Freysson, fyrirliði Njarðvíkinga, fyrsta mark leiksins á 49. mínútu.

Ólafsvíkingar gáfust ekki upp og þeir jöfnuðu á 73. mínútu með marki frá Kristófer James Eggertssyni.

Þar við sat og lokatölur því 1-1 í þessum leik, en bæði lið voru að spila sinn ann leik í mótinu. Njarðvík er með fjögur stig eftir sigur á Aftureldingu í fyrsta leik, en Ólsarar, þeir eru með tvö stig eftir jafntefli við Vestra í fyrsta leik.

Vestri og Afturelding spila í riðlinum laugardaginn næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner