Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 15. janúar 2019 21:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Higuain tæklaði Gattuso á æfingu
Mynd: Getty Images
Gennaro Gattuso, þjálfari AC Milan, ákvað að taka þátt á æfingu en það endaði ekkert rosalega vel fyrir hann.

Gattuso var nefnilega tæklaður af framherjanum Gonzalo Higuain.

Gattuso var á leikmannaferli sínum miðjumaður sem var þekktur fyrir að vera harður í horn að taka, en það var hann sem fékk að finna fyrir því á æfingunni.

Higuain er á láni hjá AC Milan frá Juventus, en hann hefur verið orðaður við Chelsea síðustu daga. Gattuso staðfesti það um síðustu helgi að Higuain vildi fara frá félaginu.

Á blaðamannafundi í kvöld, fyrir leikinn gegn Juventus í ítalska Ofurbikarnum á morgun, sagði Gattuso hins vegar að Higuain sé ekki formlega búinn að biðja um að fá að fara, hann sé að æfa vel og virki ánægður á æfingum.

Higuain gæti spilað á morgun þegar Milan mætir Juventus.

Hér að neðan er myndbandið af því þegar argentíski sóknarmaðurinn tæklaði Gattuso á æfingu.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner