Miðjumaðurinn Harry Wilson segist vera staðráðinn í að komast inn í aðallið Liverpool í framtíðinni.
Hinn 21 árs gamli Wilson er í láni hjá Derby frá Liverpool. Walesverjinn hefur skorað tólf mörk í öllum keppnum á þessu tímabili með Derby.
Hinn 21 árs gamli Wilson er í láni hjá Derby frá Liverpool. Walesverjinn hefur skorað tólf mörk í öllum keppnum á þessu tímabili með Derby.
Wilson vonast hins vegar til þess að fá sénsinn hjá aðalliði Liverpool síðar meir.
„Aðaleinbeitingin er á að komast upp um deild með Derby," sagði Wilson.
„Markmið mitt er að spila fyrir Liverpool. Mér hefur alltaf liðið eins og leikmanni Liverpool. Allt er á réttri leið."
Athugasemdir