Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 15. febrúar 2019 05:55
Arnar Helgi Magnússon
Ítalía um helgina - Juve í beinni í kvöld
Mynd: Getty Images
Verður Icardi með um helgina?
Verður Icardi með um helgina?
Mynd: Getty Images
Ítalska úrvalsdeildin rúllar í kvöld þegar Juventus fær Frosinone í heimsókn en leikurinn að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2. Juventus er lang efsta lið deildarinnar á meðan Frosinone er í næst neðsta sæti.

Tveir leikir eru á dagskrá í deildinni á morgun en Cagliari fær Parma í heimsókn í fyrri leik dagsins og Atlanta tekur á móti AC Milan í þeim síðari. Aðeins eitt stig skilur Milan og Atlanta að en bæði liðin í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti.

Eins og svo oft áður eru það sunnudagarnir sem að eru stærstir á Ítalíu en sex leikir fara fram þá og hefst fyrsti leikurinn strax klukkan 11:30 þegar SPAL og Fiorentina eigast við.

Þrír leikir fara fram klukkan 14:00 áður en að Inter og Sampdoria mætast í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3. Það hefur verið mikil ólga í herbúðum Inter undanfarna daga og vikur en gengi liðsins verið dapurt. Mauro Icardi var til að mynda sviptur fyrirliðabandinu í vikunni.

Lokaleikur sunnudagsins er viðureign Napoli og Torino. Napoli er fyrir umferðina ellefu stigum á eftir Juventus í öðru sæti deildarinnar. Torino siglir lygnan sjó í 8. sætinu.

Umferðin klárast á mánudagskvöld þegar Roma og Bologna eigast við en lið Bologna aðeins nælt sér í átján sig á leiktíðinni og situr í 17. sæti.

Í kvöld:
19:30 Juventus – Frosinone (Stöð 2 Sport 2)

Laugardagur:
17:00 Cagliari – Parma
19:30 Atlanta – AC Milan (Stöð 2 Sport 2)

Sunnudagur:
11:30 SPAL – Fiorentina (Stöð 2 Sport 3)
14:00 Udinese – Chievo
14:00 Genoa – Lazio
14:00 Empoli – Sassuolo
17:00 Inter – Sampdoria (Stöð 2 Sport 3)
19:30 Napoli – Torino (Stöð 2 Sport)

Mánudagur:
19:30 Roma – Bologna (Stöð 2 Sport 2)
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 27 5 1 79 18 +61 86
2 Milan 33 21 6 6 64 39 +25 69
3 Juventus 33 18 10 5 47 26 +21 64
4 Bologna 33 17 11 5 48 26 +22 62
5 Roma 32 16 7 9 57 38 +19 55
6 Atalanta 32 16 6 10 59 37 +22 54
7 Lazio 33 16 4 13 42 35 +7 52
8 Napoli 33 13 10 10 50 41 +9 49
9 Fiorentina 32 13 8 11 45 36 +9 47
10 Torino 33 11 13 9 31 29 +2 46
11 Monza 33 11 10 12 35 43 -8 43
12 Genoa 33 9 12 12 35 40 -5 39
13 Lecce 33 8 11 14 30 48 -18 35
14 Cagliari 33 7 11 15 36 56 -20 32
15 Verona 33 7 10 16 31 44 -13 31
16 Empoli 33 8 7 18 26 48 -22 31
17 Udinese 32 4 16 12 30 48 -18 28
18 Frosinone 33 6 10 17 40 63 -23 28
19 Sassuolo 33 6 8 19 39 65 -26 26
20 Salernitana 33 2 9 22 26 70 -44 15
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner