Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 15. febrúar 2019 14:38
Elvar Geir Magnússon
Martial og Lingard ekki með gegn Chelsea og Liverpool
Jesse Lingard.
Jesse Lingard.
Mynd: Getty Images
Anthony Martial og Jesse Lingard munu missa af FA-bikarleik Manchester United gegn Chelsea á mánudag og leiknum gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, segir að leikmennirnir verði frá í tvær til þrjár vikur vegna vöðvameiðsla sem þeir hlutu í 0-2 tapleiknum gegn Paris St-Germain.

Solskjær sat fyrir svörum á fréttamannafundi í dag og sagði meðal annars að það væri engin örvænting í hópnum þrátt fyrir fyrsta tapið síðan hann tók við.

„Hjá þessu félagi þarftu að svara til baka. Það koma alltaf nýjar áskoranir og þessi gegn Chelsea verður mjög erfið. Við þurfum að halda sama jákvæða hugarfarinu og halda áfram að sækja fram," segir Solskjær.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner