Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 15. febrúar 2019 05:55
Arnar Helgi Magnússon
Spánn um helgina - Real og Barca spila heimaleiki
Mynd: Getty Images
Barcelona mistókst að ná átta stiga forskoti á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Athletic Bilbao um síðustu helgi.

Um helgina fer fram 24. umferð deildarinnar og herlegheitin hefjast í kvöld með leik Eibar og Getafe. Sá leikur sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 4.

Fjórir leikir eru á dagskrá í deildinni á morgun en Celta Vigo tekur á móti Levante í fyrsta leik dagsins. Atletico Madrid heimsækir Rayo Vallecano og Real Sociedad fær Leganes í heimsókn.

Topplið deildarinnar, Barcelona, mætir Real Valladolid annað kvöld. Valladolid í 15. sæti deildarinnar en liðið verið að fatast flugið eftir góða byrjun í deildinni.

Það eru einnig fjórir leikir á sunnudag en Real Madrid verður í eldlínunni um morguninn þegar liðið fær Girona í heimsókn. Real freistar þess nú að ná í skottið á Börsungum á með Girona er í harðri fallbaráttu.

Huesca og Athletic Bilbao loka síðan umferðinni á mánudagskvöldið þegar liðin mætast. Huesca í neðsta sæti deildarinnar en Bilbao siglir lygnan sjó um miðja deild.

Í kvöld:
20:00 Eibar – Getafe (Stöð 2 Sport 4)

Laugardagur:
12:00 Celta Vigo – Levante
15:15 Rayo Vallecano – Atletico Madrid (Stöð 2 Sport 2)
17:30 Real Sociedad – Leganes (Stöð 2 Sport 2)
19:45 Barcelona – Valladolid (Stöð 2 Sport)

Sunnudagur:
11:00 Real Madrid – Girona (Stöð 2 Sport)
15:15 Valencia – Espanyol (Stöð 2 Sport 4)
17:30 Villareal – Sevilla (Stöð 2 Sport 4)
19:45 Real Betis – Sevilla (Stöð 2 Sport 2)

Mánudagur:
20:00 Huesca – Athletic Bilbao
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 31 24 6 1 67 20 +47 78
2 Barcelona 31 21 7 3 62 34 +28 70
3 Girona 31 20 5 6 63 39 +24 65
4 Atletico Madrid 31 19 4 8 59 36 +23 61
5 Athletic 32 16 10 6 52 30 +22 58
6 Real Sociedad 31 13 11 7 45 33 +12 50
7 Valencia 31 13 8 10 34 32 +2 47
8 Betis 31 11 12 8 38 37 +1 45
9 Getafe 31 9 12 10 37 43 -6 39
10 Villarreal 31 10 9 12 49 54 -5 39
11 Osasuna 31 11 6 14 36 44 -8 39
12 Las Palmas 31 10 7 14 29 35 -6 37
13 Sevilla 31 8 10 13 39 44 -5 34
14 Alaves 31 8 8 15 26 38 -12 32
15 Mallorca 31 6 13 12 25 36 -11 31
16 Vallecano 31 6 13 12 25 38 -13 31
17 Celta 31 6 10 15 33 46 -13 28
18 Cadiz 31 4 13 14 21 41 -20 25
19 Granada CF 32 3 9 20 33 61 -28 18
20 Almeria 31 1 11 19 30 62 -32 14
Athugasemdir
banner
banner
banner