15.02.25 - 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Frábær byrjun hjá Gimenez

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Milan 1 - 0 Verona
1-0 Santiago Gimenez ('75 )
1-0 Santiago Gimenez ('75 )
MIlan þurfti nauðsynlega á sigri að halda þegar liðið mætti Verona í ítölsku deildinni í kvöld. Liðið var fjórum stigum frá topp sex fyrir leikinn.
Liðinu gekk illa að koma boltanum á markið en Santiago Gimenez átti einu tilraunina á markið í seinni hálfleik og boltinn fór í netið. Þetta var annað mark hans í fyrstu tveimur deildarleikjunum síðan hann kom frá Feyenoord í janúar.
Liðið vann Empoli í síðustu umferð en þetta var í fyrsta sinn síðan í september sem liðið vinnur tvo deildarleiki í röð.
Milan er í 7. sæti, stigi á eftir Fiorentina eftir 24 umferðir. Verona er í 15. sæti aðeins þremur stigum frá fallsæti en liðin fyrir neðan eiga öll leik til góða.