Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 15. mars 2019 18:00
Arnar Helgi Magnússon
Gummi Tóta lagði upp í stórsigri Norrköping á Malmö
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Guðmundur Þórarinsson átti flottan leik fyrir IFK Norrköping þegar liðið mætti Malmö í æfingaleik í Svíþjóð í dag.

Það fer að styttast í það að Allsvenskan hefjist en liðin eru nú á lokastigi undirbúningsins. Gummi Tóta mætir Andra Rúnari Bjarnasyni í fyrstu umferð deildarinnar þann 31. mars. Andri Rúnar leikur með Helsingborg.

Guðmundur lagði upp þriðja mark Norrköping í leiknum fyrir Svíann Kalle Holmberg.

Leiknum lauk með 4-1 sigri Norrköping en liðið skoraði fjögur mörk í röð eftir að hafa lent 0-1 undir.

Alfons Sampsted spilar einnig með liðinu en hann var ekki í leikmannahóp liðsins í dag.

Guðmundur Þórarinsson var ekki valinn í landsliðshóp Íslands sem að var opinberaður í gær þrátt fyrir tvær góðar frammistöður í landsliðsverkefninu í janúar þegar liðið spilaði tvo leiki í Katar.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner