Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 15. mars 2019 05:55
Arnar Helgi Magnússon
Ítalía um helgina - Stórleikur á San Siro
Piatek er sjóðandi heitur
Piatek er sjóðandi heitur
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo skaut Juventus áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar í vikunni þegar að hann setti þrennu gegn Atletico Madrid. Ronaldo og Juventus verða í eldlínunni á sunnudag.

Umferðin hefst hinsvegar í kvöld þegar Cagliari og Fiorentina mætast. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3.

Þrír leikir eru á dagskrá í deildinni á morgun. Sassuolo og Sampdoria mætast í fyrsta leik dagsins áður en að Claudio Ranieri, nýr stjóri Róma, ferðast með lið sitt til Ferrara og mætir þar SPAL.

Juventus heimsækir Genoa í fyrsta leik dagsins á sunnudag. Juventus er komið með átján stiga forskot á toppi deildarinnar og það mun ekkert koma í veg fyrir það að þeir verði Ítalíumeistarar.

Stórleikur helgarinnar á Ítalíu er án efa viðureign AC Milan og Inter Milan. Flautað verður til leiks á San Siro klukkan 19:30 á sunnudag. AC Milan hefur verið á svakalegu skriði en liðið hefur ekki tapað leik síðan í desember. Þrátt fyrir það munar bara einu stigi á liðunum í deildinni.

Föstudagur:
19:30 Cagliari – Fiorentina (Stöð 2 Sport 3)

Laugardagur:
14:00 Sassuolo - Sampdoria
17:00 Spal - Roma (Stöð 2 Sport 5)
19:30 Torino - Bologna (Stöð 2 Sport 3)

Sunnudagur:
11:30 Genoa - Juventus (Stöð 2 Sport)
14:00 Atalanta - Chievo
14:00 Empoli - Frosinone
14:00 Lazio - Parma (Stöð 2 Sport 4)
17:00 Napoli - Udinese (Stöð 2 Sport 2)
19:30 Milan - Inter (Stöð 2 Sport 3)
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 27 5 1 79 18 +61 86
2 Milan 33 21 6 6 64 39 +25 69
3 Juventus 33 18 10 5 47 26 +21 64
4 Bologna 33 17 11 5 48 26 +22 62
5 Roma 32 16 7 9 57 38 +19 55
6 Atalanta 32 16 6 10 59 37 +22 54
7 Lazio 33 16 4 13 42 35 +7 52
8 Napoli 33 13 10 10 50 41 +9 49
9 Fiorentina 32 13 8 11 45 36 +9 47
10 Torino 33 11 13 9 31 29 +2 46
11 Monza 33 11 10 12 35 43 -8 43
12 Genoa 33 9 12 12 35 40 -5 39
13 Lecce 33 8 11 14 30 48 -18 35
14 Cagliari 33 7 11 15 36 56 -20 32
15 Verona 33 7 10 16 31 44 -13 31
16 Empoli 33 8 7 18 26 48 -22 31
17 Udinese 32 4 16 12 30 48 -18 28
18 Frosinone 33 6 10 17 40 63 -23 28
19 Sassuolo 33 6 8 19 39 65 -26 26
20 Salernitana 33 2 9 22 26 70 -44 15
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner