Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 15. mars 2019 08:00
Arnar Helgi Magnússon
Jones kemur Pogba til varnar - „Svarar á vellinum"
Mynd: Getty Images
Paul Pogba hefur verið magnaður í liði Manchester United síðan að Ole Gunnar Solskjær tók við liðinu í desember.

Pogba spilaði ekki eins vel undir stjórn Mourinho og var þá mikið gagnrýndur fyrir líf sitt utan vallar, til dæmis nýjar klippingar og færslur á samfélagsmiðlum.

Phil Jones, leikmaður Manchester United, hefur nú komið samherja sínum til varnar.

„Hann svarar allri gagnrýni á vellinum með þessari spilamennsku. Sumir svara gagnrýni með orðum en Pogba gerir það á vellinum."

„Svo lengi sem að hann spilar svona þá getur hann gert það sem að honum sýnist utan vallar."

„Hann er í sínu besta formi. Hann getur náð eins langt og hann vill. Hlutirnir sem að hann getur gert með boltann eru ótrúlegir. Hann getur skotið og sent með vinstri og hægri, hann er sterkur og hefur endalausa hæfileika."

Manchester United mætir Wolves í FA-bikarnum annað kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner