Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 15. mars 2019 05:55
Arnar Helgi Magnússon
Spánn um helgina - Zidane fær þægilega byrjun
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane er mættur aftur í spænska boltann eftir að hafa tekið sér smá pásu frá þjálfun. Real Madrid mætir Celta Vigo á Santiago Bernabeu á morgun.

Umferðin hefst í kvöld þegar Real Sociedad fær Levante í heimsókn, leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.

Fjórir leikir eru á morgun og hefst veislan strax í hádeginu þegar Huesca og Alaves mætast.

Síðan er það Real Madrid sem að mætir Celta Vigo með nýjan mann í brúnni. Real Madrid er fyrir umferðina tólf stigum á eftir toppliðinu, Barcelona. Celta Vigo situr í átjánda sæti og berst fyrir lífi sínu í deildinni.

Það verður fróðlegt að sjá hvernig Atletico Madrid kemur til leiks eftir að hafa steinlegið fyrir Juventus í Meistaradeildinni í vikunni. Liðið á útileik gegn Athletic Bilbao.

Toppliðið, Barcelona, leikur síðasta leik helgarinnar gegn Real Betis á sunnudagskvöld en fjórir leikir fara fram fyrr um daginn.

Hér að neðan má sjá þá leiki sem eru á dagskrá í spænsku úrvalsdeildinni um helgina.

Föstudagur:
20:00 Real Sociedad - Levante (Stöð 2 Sport 2)

Laugardagur:
12:00 Huesca - Alaves
15:15 Real Madrid - Celta Vigo (Stöð 2 Sport)
17:30 Athletic - Atletico Madrid (Stöð 2 Sport 4)
19:45 Leganes - Girona

Sunnudagur:
11:00 Eibar - Valladolid
15:15 Espanyol - Sevilla (Stöð 2 Sport 3)
17:30 Valencia - Getafe
17:30 Villarreal - Vallecano
19:45 Betis - Barcelona (Stöð 2 Sport 2)
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 32 25 6 1 70 22 +48 81
2 Barcelona 32 21 7 4 64 37 +27 70
3 Girona 32 21 5 6 67 40 +27 68
4 Atletico Madrid 32 19 4 9 59 38 +21 61
5 Athletic 32 16 10 6 52 30 +22 58
6 Real Sociedad 32 13 12 7 46 34 +12 51
7 Betis 32 12 12 8 40 38 +2 48
8 Valencia 32 13 8 11 35 34 +1 47
9 Villarreal 32 11 9 12 51 55 -4 42
10 Getafe 32 9 13 10 38 44 -6 40
11 Osasuna 32 11 6 15 37 46 -9 39
12 Sevilla 32 9 10 13 41 45 -4 37
13 Las Palmas 32 10 7 15 30 39 -9 37
14 Alaves 32 9 8 15 28 38 -10 35
15 Vallecano 32 7 13 12 27 39 -12 34
16 Mallorca 32 6 13 13 26 38 -12 31
17 Celta 32 7 10 15 37 47 -10 31
18 Cadiz 32 4 13 15 22 45 -23 25
19 Granada CF 32 3 9 20 33 61 -28 18
20 Almeria 32 1 11 20 31 64 -33 14
Athugasemdir
banner
banner
banner