Tryggvi Hrafn Haraldsson er með áritaða Halmstad treyju á lottó uppboði til styrktar Minningarsjóð Einars Darra.
Miðinn kostar aðeins 100 krónur og getur þú nælt þér í hann á CharityShirts.
Vinningshafi verður dreginn út mánudaginn 25 Mars kl 19:00. Allur ágóði rennur til Minningarsjóðs Einars Darra
Samtals hefur CharityShirts og leikmenn safnað 1.025.000 til góðgerðamála
Tryggvi Rafn Haraldsson gekk í raðir ÍA í janúar en hinn 22 ára gamli leikmaður er uppalinn hjá ÍA en hann skoraði fimm mörk í þrettán leikjum í Pepsi-deildinni árið 2017 áður en Halmstad keypti hann um mitt sumar.
Tryggvi skoraði þrjú mörk í 27 leikjum með Halmstad en á síðasta tímabili var hann mikið á bekknum hjá liðinu í sænsku B-deildinni.
Athugasemdir