Jose Mourinho, stjóri Manchester United var ekki sáttur með 1-0 tap gegn botnlið West Brom í dag.
Við Sky Sports eftir leik gagnrýndi hann leikmenn sína og sagði: „Ég fór ekki tunglsins af því að við unnum Manchester City. Ég sá að margir voru í skýjunum með þann sigur og það sást að viðhorf leikmanna var öðruvísi í dag."

Mourinho fór síðan í athyglisvert viðtal við BBC.
„Þið elskið sögur en sagan er aðeins ein, hversu mörg stig þeir fengu," sagði Mourinho og átti þar við Manchester City sem varð Englandsmeistari eftir úrslitin á Old Trafford.
„Starfið mitt er ekki að hindra Manchester City í að vinna ensku úrvalsdeildina sem þeir voru nú þegar búnir að vinna. Mitt starf snýst um að fá þrjú stig."
Hlustaðu á brot úr viðtalinu hér að neðan.
Jose Mourinho just gave us quite a lively post-match interview 👀#MUFC
— BBC 606 (@bbc606) April 15, 2018
TAP FOR SOUND🔈 pic.twitter.com/wwKgaRwD0u
Athugasemdir