Liverpool vann stórleikinn gegn Chelsea 2-0 og er með tveggja stiga forystu á Manchester City sem vann Crystal Palace. Manchester United vann nauman sigur gegn West Ham en Tottenham rúllaði yfir Huddersfield, svo einhver úrslit helgarinnar séu nefnd.
Úrvalslið helgarinnar kemur eins og oft áður úr smiðju Garth Crooks hjá BBC.
Úrvalslið helgarinnar kemur eins og oft áður úr smiðju Garth Crooks hjá BBC.
Markvörður: Alisson (Liverpool) - Hélt markinu hreinu í sautjánda sinn í ensku úrvalsdeildinni þetta tímabilið.
Varnarmaður: Nathan Ake (Bournemouth) - Hollenski varnarmaðurinn var magnaður í sigri gegn Brighton.
Varnarmaður: Virgil van Dijk (Liverpool) - Er á eldi um þessar mundir. Ofan á frábæran varnarleik er hann farinn að eiga baneitraðar lykilsendingar eins og hann sé Andrea Pirlo.
Miðjumaður: Jordan Henderson (Liverpool) - Hefur verið geggjaður í síðustu leikjum eftir að hafa farið í meira sóknarhlutverk.
Athugasemdir