Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 15. apríl 2019 09:33
Elvar Geir Magnússon
Sanchez í hópnum hjá Man Utd
Alexis Sanchez.
Alexis Sanchez.
Mynd: Getty Images
Seinni leikur Barcelona og Manchester United í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu fer fram á Nývangi annað kvöld.

Barcelona vann fyrri leikinn 1-0 og er í góðri stöðu.

Nemanja Matic og Alexis Sanchez hafa báðir verið valdir í leikmannahóp United fyrir leikinn annað kvöld.

Matic hefur verið frá vegna meiðsla síðan United vann Watford í síðasta mánuði en búist er við því að hann komi beint inn í byrjunarliðið.

Sanchez meiddist á hné þann 2. mars og voru einhverjar vangaveltur um að hann myndi ekki spila aftur á þessu tímabili. Reiknað er með því að hann byrji á bekknum.

Matteo Darmian er einnig klár í slaginn en Luke Shaw verður í leikbanni. Shaw mun þó ferðast með liðinu til Barcelona.

Hópurinn:
De Gea, Romero, Grant, Dalot, Darmian, Young, Jones, Lindelof, Rojo, Smalling, Shaw, Fred, Matic, McTominay, Pereira, Pogba, Lingard, Mata, Martial, Sanchez, Lukaku, Rashford.
Athugasemdir
banner
banner