Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 15. apríl 2019 21:33
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Benzema bjargaði stigi fyrir Real Madrid
Karim Benzema er kominn með 27 mörk á þessari leiktíð
Karim Benzema er kominn með 27 mörk á þessari leiktíð
Mynd: Getty Images
Leganes 1 - 1 Real Madrid
1-0 Jonathan Silva ('45 )
1-1 Karim Benzema ('51 )

Zinedine Zidane og lærisveinar hans í Real Madrid gerðu 1-1 jafntefli við Leganes í spænsku fyrstu deildinni í kvöld.

Madrídingar hafa verið í miklu basli á þessari leiktíð og er Zidane að reyna að rétta úr kútnum en hann tók við eftir af Madrídingar voru sendir úr leik í Meistaradeild Evrópu er Ajax fór illa með liðið.

Jonathan Silva kom Leganes í 1-0 undir lok fyrri hálfleiks í kvöld áður en Karim Benzema jafnaði metin. Benzema var þarna að skora í fimmta leiknum í röð og hefur hann sjaldan eða jafnvel aldrei verið jafn heitur og núna.

Benzema er með 27 mörk og 10 stoðsendingar fyrir Madrídinga á þessari leiktíð og ljóst að hann er kominn í gang.

Lokatölur í kvöld 1-1 en Real Madrid er í þriðja sæti með 61 stig aðeins fjórum stigum á eftir Atlético sem er í öðru sæti.
Athugasemdir
banner
banner