„Þetta var dramatískt, það er óhætt að segja það," sagði Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Breiðabliks, eftir ótrúlegan leik gegn Þór/KA í Boganum í kvöld.
Lestu um leikinn: Þór/KA 6 - 7 Breiðablik
Blikar unnu leikinn í vítaspyrnukeppni eftir ótrúlegar lokamínútur í venjulegum leiktíma. Blikar eru komnir í úrslit A-deildar Lengjubikarsins og mæta þar Val.
„Skal alveg viðurkenna það að ég var búinn að gefa upp vonina, þegar að það voru 50 sekúndur eftir og við fengum á okkur mark - en lukkan var með okkur í dag," sagði Þorsteinn. Breiðablik svaraði með að jafna á síðustu andartökum leiksins.
Aðspurður um úrslitaleikinn sagði Þorsteinn: „Bara vel. Það er alltaf gaman að spila úrslitaleiki, en þetta er reyndar úrslitaleikur sem að ég hef aldrei unnið þannig að kannski verður hann hundleiðinlegur - en alltaf gaman að komast í hann!''
Viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir