Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 15. apríl 2019 14:13
Elvar Geir Magnússon
Warnock vill nota innblástur frá Tiger Woods
Tiger Woods vann magnaðan sigur.
Tiger Woods vann magnaðan sigur.
Mynd: Getty Images
Neil Warnock, stjóri Cardiff, segist vona að sigur kylfingsins Tiger Woods í Masters golfmótinu um helgina geti veitt Cardiff innnblástur fyrir erfiðan lokasprett í ensku úrvalsdeildinni.

Woods átti eina mögnuðustu endurkomu íþróttasögunnar í gær þegar hann vann sitt fyrsta stórmót í ellefu ár. Hann vann þá Masters í fimmta sinn á ferlinum.

Cardiff er í fallsæti, fimm stigum frá öruggu sæti.

„Það verður að halda í bjartsýnina. Það er búið að sparka okkur oft niður síðustu mánuði en við stöndum upp og höldum áfram. Það sem Tiger gerði var ótrúlegt. Enginn taldi að hann ætti möguleika á að koma til baka," segir Warnock.

„Þetta var ótrúleg saga. Það er búið að afskrifa hann svo oft en ákveðnin sem hann sýndi er ótrúleg."

„Við verðum að gera allt sem við getum og ef það nægir ekki þá verðum við bara að taka því."

Þess má geta að Warnock hefur ákveðið að áfrýja ákæru enska knattspyrnusambandsins vegna ummæla hans í garð dómara.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner