Fotbolti.net
15.05.22 - 20:10
Ívan Guðjón Baldursson

Guardiola: Lofa að Etihad verður uppseldur

,,Þetta er sem betur fer enn í okkar höndum"

Guardiola: Lofa að Etihad verður uppseldur
Canon

Mynd: EPA

Manchester City lenti tveimur mörkum undir í mikilvægum leik gegn West Ham í dag. Sigur hefði svo gott sem fært liðinu Englandsmeistaratitilinn þrátt fyrir tap í lokaumferðinni.

Sú varð þó ekki raunin en City náði að jafna í síðari hálfleik og fékk svo vítaspyrnu undir lokin til að taka öll stigin en Lukasz Fabianski varði meistaralega frá Riyad Mahrez.

„Þetta var frábær endurkoma gegn erfiðu liði á erfiðum útivelli. Þeir eru virkilega góðir og sterkir varnarlega en við áttum mjög góðan leik. Ég sagði við strákana í hálfleik að halda áfram að gera það sem þeir voru að gera, við þurftum bara eitt mark til að komast aftur í leikinn og sem betur fer skoruðum við skömmu eftir það," sagði Pep Guardiola stjóri City að leikslokum.

„Núna er bara einn leikur eftir og ég get lofað ykkur að Etihad Stadium verður uppseldur. Við munum gera okkar besta til að vinna titilinn.

„Það hefði verið fullkomið að vinna í dag en West Ham er að berjast um Evrópudeildina og hafa átt ótrúlegt tímabil."

Þrátt fyrir jafnteflið er þetta enn í höndum City sem getur tryggt sér titilinn með sigri á heimavelli gegn Aston Villa í lokaumferðinni.

„Þetta verður ekki auðveldur leikur, það er mikið af tilfinningum og við þurfum að einbeita okkur að því að halda rónni og mæta ferskir í leikinn. Við höfum heila viku til að undirbúa okkur og munum gera allt til að vinna. 

„Þetta er sem betur fer enn í okkar höndum."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.