Ekki hafa fengist staðfestar tölur frá FIFA um það hversu margir íslenskir stuðningsmenn verða á vellinum á leik Íslands og Argentínu á morgun.
Leikurinn fer fram á heimavelli Spartak Moskvu sem tekur 44,190 áhorfendur í sæti.
Leikurinn fer fram á heimavelli Spartak Moskvu sem tekur 44,190 áhorfendur í sæti.
Ómar Smárason, fjölmiðlafulltrúi KSÍ, segir að þar á bæ giski menn á að íslenskir stuðningsmenn verði í kringum 5000. Engar staðfestar tölur hafa þó borist.
Að sögn Ómars tippar KSÍ á að í kringum 3000 íslenskir stuðningsmenn verði á leiknum gegn Nígeríu í Volgograd eftir viku og í kringum 3000 íslenskir stuðningsmenn verði á leiknum við Króatíu þriðjudaginn 26. júni.
Myndir: Hér spilar Ísland við Argentínu á morgun
Athugasemdir