Klukkan 15:00 í dag fer af stað leikur Marokkó og Íran í B-riðli Heimsmeistaramótsins.
Það er mikið undir í þessum leik fyrir bæði lið því hin liðin í riðlinum eru Spánn og Portúgal. Við fengum Björgvin Stefánsson, framherja KR, til að spá í leik Marokkó og Íran.
Það er mikið undir í þessum leik fyrir bæði lið því hin liðin í riðlinum eru Spánn og Portúgal. Við fengum Björgvin Stefánsson, framherja KR, til að spá í leik Marokkó og Íran.
Marokkó 3 - 0 Íran
Marokkóarnir eru með fínt lið og spái ég þeim öruggum 3-0 sigri. Ég held að þeir verði spútník lið mótsins og fari allavega í 8-liða úrslit. Íranir eru hins vegar ógeðslega lélegir og tapa öllu. Þeir geta ekki neitt. Það er eiginlega bara ótrúlegt að þeir séu á HM. Burt með þá.
Ég þekki bara einn leikmann frá Íran og það er framherjinn Zahedi í ÍBV. Skruggu fljótur og fínasti leikmaður. Af hverju er hann ekki á HM?
Athugasemdir