Ísland - Argentína á morgun
Heimir Hallgrímsson, þjálfari íslenska landsliðsins hefur ákveðið hvaða leikmenn byrja fyrsta leik Íslands á HM í Rússlandi á morgun gegn Argentínu.
„Við erum búnir að ákveða hvernig liðið verður skipað. Leikmenn fá að vita það einhverntímann fyrir leik. Hvenær það verður, er aukaatriði. En við erum ákveðnir hvernig við byrjum," sagði Heimir á fréttamannafundi Íslands sem haldin var rétt í þessu.
Arnar Björnsson, fréttamaður á Stöð2 spurði Heimi síðan að því hvort Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði Íslands fengi að fikta eitthvað í byrjurnarliðinu.
„Aron fær ekki að fikta í byrjunarliðinu. Það er nú bara ég, Helgi (Kolviðsson, aðstoðarþjálfari) og Gummi (Guðmundur Hreiðarsson, markmannsþjálfari)."
Það kom fram á fundinum að Aron Einar sé klár í bátana.
Athugasemdir