Manuel Neuer, markvörður þýska landsliðsins segist verkjalaus og er jákvæður á framhaldið en það styttist í fyrsta leik liðsins gegn Mexíkó á sunnudaginn.
Neuer er að koma til baka eftir að hafa fóbrotnað og spilaði aðeins þrjá úrvalsdeildarleiki fyrir Bayern Munich á síðustu leiktíð. Hann spilaði sinn fyrsta leik í átta mánuði 2.júní þegar Þýskaland tapaði gegn Austurríki.
„Ég fékk grænt ljós frá læknunum og hef verið jákvæður og tekist þannig að auka álagið á æfingum hjá mér jafnt og þétt," sagði Neuer.
Þýskaland rétt marði Sádí Arabíu 2-1 í síðasta vináttuleik sínum fyrir mótið. Neuer segir liðið ekki þurfa að hafa áhyggjur og bendir á að það sé ekki hægt að bera saman vináttuleiki við leiki á heimsmeistaramóti.
„Við þurfum að halda einbeitingu, vera þéttir og tryggja að við gefum boltann ekki of oft frá okkur. Við þurfum að forðast að fá á okkur skyndisóknir," sagði Neuer.
Athugasemdir