Samherjar 1 - 1 SR
0-1 Hrafn Ingi Jóhannsson ('39)
1-1 Karol Walejko ('53)
0-1 Hrafn Ingi Jóhannsson ('39)
1-1 Karol Walejko ('53)
Það var einn leikur í 4. deild karla í dag þegar Samherjar og SR mættust fyrir norðan. Leikurinn var í A-riðli.
Það voru gestirnir úr SR sem leiddu 1-0 í hálfleik eftir mark frá Hafni Inga Jóhannssyni á 39. mínútu.
Leikmenn Samherja mættu af krafti inn í seinni hálfleikinn og jöfnuðu á 53. mínútu. Markið skoraði Karol Walejko og staðan jöfn á nýjan leik.
Þáð voru ekki fleiri mörk skoruð og niðurstaðan því 1-1 jafntefli. Bæði lið eru með sjö stig eftir fimm leiki í fjórða og fimmta sæti riðilsins.
Athugasemdir