Kanada og Holland áfram í 16-liða úrslit
Kanada 2 - 0 Nýja-Sjáland
1-0 Jessie Fleming ('48 )
2-0 Nichelle Prince ('79 )
1-0 Jessie Fleming ('48 )
2-0 Nichelle Prince ('79 )
Kanada og Holland eru komin áfram í 16-liða úrslit Heimsmeistaramóts kvenna.
Holland lagði Kamerún fyrr í dag og vann Kanada sigur á Nýja-Sjálandi í kvöld.
Það tók tíma fyrir Kanada að brjóta ísinn. Staðan var markalaus í hálfleik, en í seinni hálfleiknum komst Kanada yfir þegar Jessie Fleming skoraði.
Á 79. mínútu skoraði Nichelle Prince annað mark Kanada og gerði út um leikinn.
Lokatölur 2-0 fyrir Kanada sem er með sex stig eins og Holland. Nýja-Sjáland mætir Kamerún í lokaumferð riðilsins og gæti sá leikur skipt miklu máli þar sem fjögur lið með góðan árangur í þriðja sæti fara einnig áfram.
Betsy Hassett, leikmaður KR, spilaði 85 mínútur fyrir Nýja-Sjáland í kvöld.
Athugasemdir