Ian Rush, markahæsti leikmaður í sögu Evrópumeistara Liverpool, telur að Gareth Bale, myndi komast auðveldlega í byrjunarliðið hjá Manchester United.
Bale fagnar þrítugsafmæli sínu í sumar en hann er ekki í áætlunum Zinedine Zidane, stjóra Real Madrid. Leikmaðurinn hefur oft verið orðaður við Manchester United í gegnum tíðina.
Rush, landi Bale frá Wales, telur að Manchester United og Tottenham séu einu raunhæfu kostirnir fyrir Bale á Englandi.
„Hvert annað ætti hann að fara? Þegar þú horfir á Manchester United á síðasta tímabili, hann myndi komast auðveldlega í það byrjunarlið," sagði Rush við BBC.
Samkvæmt nýjustu frengum frá Englandi hefur Manchester United hins vegar ekki lengur áhuga á Bale.
Where will Gareth Bale end up?
— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) June 13, 2019
Athugasemdir