Srdjan Tufegdzic, betur þekktur sem Tufa, var að vonum svekktur eftir að hans menn í Grindavík lutu í lægra haldi gegn hans fyrrum lærisveinum í KA í dag. Leiknum lauk með 2-1 sigri norðanmanna.
„Tilfinningin var skrítin en góð. Þetta er í fyrsta skipti sem að ég mæti KA en ég er bara það mikill atvinnumaður að ég kom hingað bara til að sækja sigur í dag." sagði Tufa eftir leik.
„Tilfinningin var skrítin en góð. Þetta er í fyrsta skipti sem að ég mæti KA en ég er bara það mikill atvinnumaður að ég kom hingað bara til að sækja sigur í dag." sagði Tufa eftir leik.
Lestu um leikinn: KA 2 - 1 Grindavík
Eins og áður segir lauk leiknum með 2-1 sigri KA. Leikurinn var gríðarlega jafn út á velli en lítið var um opin marktækifæri.
„Þetta var góður leikur af okkar hálfu og þetta var skemmtilegur leikur að horfa á. Mér hefði ekki fundist ósanngjarnt ef að þessi leikur hefði endað með jafntefli."
Grindavík situr í 8.sæti Pepsi Max-deildarinnar með 10 stig eftir átta umferðir í þessari gríðarlegu jöfnu deild.
„Hingað til höfum við trúað á okkar leik og mér finnst við spila betur með hverjum leiknum. Það er líka gaman að sjá unga stráka úr 2.flokki Grindavíkur koma upp. Þetta er okkar hópur sem að er vel samstillur og við ætlum að halda áfram í þessari baráttu." sagði Tufa að lokum.
Nánar er rætt við Tufa í spilaranum að ofan.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir