Fotbolti.net
15.06.21 - 11:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Í samstarfi við styrktaraðila

Benzema og Griezmann klárir í kvöldið - Goretzka ekki með

Benzema áður en hann fór meiddur af velli gegn Búlgaríu í síðustu viku.

Benzema áður en hann fór meiddur af velli gegn Búlgaríu í síðustu viku.

Canon

Mynd: EPA

Í kvöld fer fram einn af stærstu leikjum riðlakeppninnar á EM þegar Frakkland og Þýskaland mætast í Munchen.

Karim Benzema fór meiddur af velli í æfingaleik í síðustu viku en framherjinn er klár í slaginn og getur spilað með franska liðinu. Þá er einnig greint frá því að Antoine Griezmann sé klár.
Leon Goretzka, miðjumaður þýska liðsins, verður ekki með vegna meiðsla á fæti.

Búast má við því að Ilkay Gundogan og Toni Kroos verði á miðjunni líkt og í 7-1 sigrinum gegn Lettlandi í síðustu viku.

Leikurinn hefst klukkan 19:00 í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.