France 1 - 0 Germany
0-1 Mats Hummels ('20 , sjálfsmark)
0-1 Mats Hummels ('20 , sjálfsmark)
Heimsmeistarar Frakklands byrja Evrópumeistaramótið 2020 vel en liðið spilaði opnunarleik sinn í kvöld.
Verkefnið var alls ekki auðvelt fyrir Frakka sem mættu Þýskalandi - spilað var á Allianz Arena vellinum í Munchen.
Margir spá Frökkum sigri í þessu móti og þeir ollu engum vonbrigðum í 1-0 sigri á þeim þýsku.
Eina mark leiksins var skorað á 20. mínútu er Mats Hummels skoraði nokkuð klaufalegt sjálfsmark fyrir Þýskaland.
Kylian Mbappe og Karim Benzema bættu við mörkum fyrir Frakka í seinni hálfleik en þau voru bæði dæmd af vegna rangstöðu.
Þýskaland fékk afar takmarkað magn af tækifærum og hefur liðið oft virkað meira sannfærandi.
Þetta er í fyrsta sinn sem Þýskaland tapar opnunarleik sínum á EM.
Athugasemdir