Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 15. júní 2021 17:58
Victor Pálsson
EM: Ronaldo með tvö er Portúgal skoraði þrjú undir lokin
Mynd: Getty Images
Hungary 0 - 3 Portugal
0-1 Raphael Guerreiro ('84 )
0-2 Cristiano Ronaldo ('87 , víti)
0-3 Cristiano Ronaldo ('90 )

Portúgal vann að lokum sannfærandi 3-0 sigur á EM alls staðar í dag er liðið mætti Ungverjum.

Það tók langan tíma fyrir leikinn í dag að komast af stað en fyrsta markið kom á 84. mínútu leiksins.

Raphael Guerreiro skoraði þá fyrir Portúgalana og virtist ætla að tryggja þeim mikilvæg þrjú stig.

Þá var röðin komin að Cristiano Ronaldo sem bætti við tveimur mörkum fyrir núverandi Evrópumeistara og niðurstaðan 3-0 sigur Portúgals.

Þetta var fyrsti leikur Portúgals á EM þetta árið og byrjar liðið því af miklum krafti.

Ronaldo er nú kominn með 106 landsliðsmörk og nálgast met Ali Daei fyrir Íran sem skoraði 109.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner