Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 15. júní 2021 17:01
Ívan Guðjón Baldursson
Jafnt í hálfleik - Sjáðu klúður Ronaldo
Mynd: Getty Images
Evrópumeistarar Portúgal hefja titilvörnina á útivelli gegn Ungverjalandi. Spilað er á Puskas Arena í Búdapest og eru rúmlega 60 þúsund áhorfendir mættir á völlinn.

Staðan er markalaus í hálfleik en Cristiano Ronaldo hefur átt langbesta færið hingað til. Boltinn datt fyrir stórstjörnuna nokkra metra frá markinu en hann setti knöttinn vel yfir rammann.

Portúgalir hafa verið betri í fyrri hálfleik og komust í góðar sóknarstöður þar sem Diogo Jota var sérlega líflegur. Ungverjarnir hafa átt sínar rispur og eru að berjast með kjafti og klóm á heimavelli en spurning hvort það nægi til að leikslokum.

Portúgal þarf helst sigur hér í dag í ljósi þess að næstu andstæðingar riðlakeppninnar eru Þjóðverjar og svo heimsmeistarar Frakka.

Sjáðu klúðrið
Athugasemdir
banner
banner