„Ég var ánægður með hvernig við komum inn í hann og við náðum inn marki en eftir það áttum við handónýtan kafla," sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari Vestra, um leikinn gegn Kára í 2. deild karla í gær, laugardag.
Leikurinn endaði 2-2. Vestri komst í 1-0 en Kári kom til baka og komst í 2-1. Svo jafnaði Vestri.
„Við buðum þeim upp í dans, því miður. Þetta er mjög ólíkt okkur miðað við síðustu leiki. Það var eitthvað kæruleysi í gangi, við vorum ekki á tánum. Að ná forystu eins og liði gegn Kára á að vera gulls ígildi," sagði Bjarni.
„Ég ber alveg virðingu fyrir þessi stigi en það hefði verið flott að stimpla sig upp í 20 stig og vera bara einu stigi á eftir Völsungi og Kára. Í staðinn þurfum við að fara aðeins lengri leið í seinni umferðinni, það er ekkert óyfirstíganlegt."
„Mér fannst við geta lagt meira í þetta í dag," sagði Bjarni en hann ætlar að skoða að fá fleiri leikmenn í glugganum.
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir