Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 15. júlí 2018 15:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Firmino keypti bjór fyrir 200 manns
Firmino skemmtir sér vel í fríi í Brasilíu.
Firmino skemmtir sér vel í fríi í Brasilíu.
Mynd: Getty Images
Eftir að hafa spilað á HM með Brasilíu er Roberto Firmino kominn í sumarfrí.

Hann mun snúa aftur til æfinga hjá Liverpool í lok mánaðarins.

Firmino ákvað að fara heim til Brasilíu eftir HM, í heimabæinn
sinn Maceio.

Á fimmtudaginn fór hann á japanska veitingastaðinn New Hakata í Maceio og skemmti sér vel. Samkvæmt UOL Esporte, ákvað Firmino að bjóða viðstöddum upp á bjór. Það voru rúmlega 200 manns á staðnum.

Firmino sá líka til þess að staðurinn var opinn til klukkan þrjú um nóttina en hann lokar vanlega klukkan hálf eitt.

Firmino skemmti sér vel og sá til þess að aðrir gerðu það líka.



Athugasemdir
banner
banner
banner