Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   sun 15. júlí 2018 19:30
Ingólfur Páll Ingólfsson
Griezmann: Veit ekki hvar ég er, ég er svo glaður!
Griezmann með bikarinn.
Griezmann með bikarinn.
Mynd: Getty Images
Antoine Griezmann var í skýjunum eftir sigur Frakklands í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í dag.

Griezmann var ánægður með leikinn og er strax byrjaður að undirbúa sig fyrir heimkomu liðsins til Frakklands.

Ég veit ekki hvar ég er, ég er svo glaður! Króatía spilaði frábæran leik. Þetta var erfiður leikur fyrir okkur þar sem við byrjuðum hægt. Við gerðum gæfumuninn í skyndisóknum. Þetta er svo ánægjulegt,” sagði Griezmann.

Við getum ekki beðið eftir því að fara með bikarinn aftur til Frakklands. Að skora í úrslitaleiknum gerir mig svo glaðan. Ég hikaði við að gera Panenka vítaspyrnu. Ég vonast til þess að fá að sofa með bikarinn.”

Árið hefur verið einstaklega gott fyrir Griezmann sem vann einnig Evrópudeildina með Atletico Madrid. Hann fær nú verðskuldað frí áður en hann snýr aftur til Spánar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner