Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 15. júlí 2018 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lineker: Kante bestur á HM - Eins og tveir miðjumenn
Kante er frábær fótboltamaður.
Kante er frábær fótboltamaður.
Mynd: Getty Images
Eftir úrslitaleikinn á HM í kvöld verður tilkynnt hver besti leikmaður mótsins hafi verið.

Talað er um að baráttan sé á milli Luka Modric, fyrirliða Króatíu, og Kylian Mbappe, vonarstjörnu Frakklands.

En fyrrum enski landsliðsframherjinn Gary Lineker er með annan kandídat í huga. Hann er á því að franski miðjumaðurinn N’Golo Kante hafi verið bestur maður mótsins hingað til.

„Að mínu mati hefur N’Golo verið besti leikmaðurinn á HM hingað til," sagði Lineker við L’Equipe.

„Hann er ekki leikmaðurinn sem talað er mest um en með hann innanborðs spilar Frakkland með 12 leikmenn. Hann er eins og tveir miðjumenn, hann er alls staðar."

Lineker er gríðarlegur aðdáandi Kante. Leicester er uppeldisfélag Lineker en Kante hjálpaði Leicester að verða Englandsmeistari 2016.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner