Fotbolti.net
15.07.20 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Subway

England í dag - Englandsmeistararnir fara á Emirates

Liverpool mætir Arsenal á Emirates

Liverpool mætir Arsenal á Emirates

Canon

Mynd: Getty Images

Englandsmeistarar Liverpool mæta Arsenal á Emirates-leikvanginum í Lundúnum klukkan 19:15 í kvöld en Mikel Arteta og hans menn þurfa að ná í sigur til að vera með í baráttunni um Evrópudeildarsæti.
Liverpool er meistari en Jürgen Klopp og hans menn hafa hins vegar sett stefnuna á stigametið í deildinni. Manchester City á metið en liðið náði 100 stigum tímabilið 2017-2018.

Til þess að bæta metið þarf Liverpool að vinna alla þrjá leikina sem eftir eru. Á meðan er Arsenal í harðri baráttu um Evrópudeildarsæti en liðið þarf að vinna sína leiki og treysta á að önnur lið tapi stigum.

Arsenal er enn með í FA-bikarnum en á þó erfitt verkefni gegn Manchester City eftir þrjá daga. City mætir einmitt Bournemouth í úrvalsdeildinni klukkan 17:00 í dag og þá mætast Newcastle og Tottenham.

Tottenham er enn með í baráttunni um Evrópudeildarsæti en eins og Arsenal þá þurfa liðin að treysta á að annað Manchester United, Wolves og Sheffield United tapi stigum.

Leikir dagsins:
17:00 Man City - Bournemouth
17:00 Newcastle - Tottenham
17:00 Burnley - Wolves
19:15 Arsenal - Liverpool

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.