Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 15. júlí 2020 09:54
Elvar Geir Magnússon
Gummi Tóta tekinn af velli í hálfleik í fyrsta byrjunarleiknum
Gummi Tóta á landsliðsæfingu.
Gummi Tóta á landsliðsæfingu.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
New York City FC 1 - 3 Orlando City
0-1 Chris Mueller ('4)
0-2 Chris Mueller ('10)
1-2 Jesus Medina ('38)
1-3 Tesho Akindele ('81)

Guðmundur Þórarinsson var í byrjunarliði New York City þegar liðið tapaði fyrir Orlando City 1-3 í bandarísku MLS-deildinni í nótt. Þetta var hans fyrsti byrjunarliðsleikur í deildinni.

Guðmundur var tekinn af velli í hálfleik en hann hafði átt eina marktilraun á rammann. New York hefur tapað báðum leikjum sínum síðan MLS-deildin fór aftur af stað.

Selfyssingurinn kom inn sem varamaður í uppbótartíma í fyrsta leik liðsins.

Vegna kórónaveirufaraldursins fer öll keppnin fram á sama svæði, Disney World svæðinu í Flórída, og er leikið án áhorfenda.


Athugasemdir
banner
banner