Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari kvennaliðs ÍBV, staðfesti í samtali við Fótbolta.net að Cloé Lacasse mun ekki spila meira fyrir liðið í haust því hún sé farin til Benfica.
Cloé var staðfest sem nýr leikmaður Benfica í júlí en spilaði þó með Eyjastúlkum eftir félagaskiptin.
Hún var ekki í hóp í 2-1 tapi gegn Stjörnunni fyrr í kvöld og staðfesti Jón Ólafur að hún mun ekki koma meira við sögu.
ÍBV er í basli í fallbaráttu Pepsi Max-deildarinnar, með 12 stig eftir 14 umferðir, aðeins tveimur stigum frá fallsvæðinu.
Athugasemdir