Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fim 15. ágúst 2019 06:00
Magnús Már Einarsson
Prófa nýjar reglur í 7 og 8. flokki
Mynd: Helgi Viðar Hilmarsson
Víkingur R. mun um helgina halda Arionbankamót í 7 og 8. flokki karla og kvenna en þar eru spilaðir stuttir leikir á litlum völlum þar sem fimm leikmenn eru í hvoru liði.

Víkingur ætlar í samstarfi við KSÍ að standa fyrir tilraunaverkefni á mótinu en innspörk verða notuð í staðinn fyrir innköst.

„Með því að taka út innköst og hafa í staðinn innspörk vonumst við til þess að leikirnir gangi hraðar, ýti undir samspil innan liðs og bæti tæknilega færni leikmanna," segir í reglum mótsins.

Í markspyrnum eiga leikmenn mótherja einnig að bakka niður að miðju. Markmaður þarf að leggja boltann á jörðina og senda á samherja.

Hér má lesa nánar um þessar nýju reglur.
Athugasemdir
banner
banner
banner