Máni Austmann Hilmarsson mun eftir allt saman ekki fara í háskóla í Bandaríkjunum og klárar hann því tímabilið með Leikni Reykjavík.
Sagt var frá því í gær að Máni hefði spilað sinn síðasta leik með Leikni á tímabilinu en svo er ekki.
„Skjótt skipast veður í lofti og Máni Austmann þarf EKKI að fara til USA í nám! Hann klárar því tímabilið með okkur!" segir Leiknir á Twitter reikningi sínum.
Máni hefur leikið vel með Leikni í sumar og er með þrjú mörk í átta leikjum.
Hann er reyndar búinn að bæta við fjórða markinu í leik gegn Þór sem núna stendur yfir. Smelltu hérna til að fara í beina textalýsingu.
STÓRAR OG GÓÐAR FRÉTTIR!
— Leiknir Reykjavík FC (@LeiknirRvkFC) August 15, 2020
Skjótt skipast veður í lofti og @ManiAustmann þarf EKKI að fara til USA í nám! Hann klárar því tímabilið með okkur!
Máni byrjar gegn Þór#StoltBreiðholts pic.twitter.com/dVkL1LjsFB
Athugasemdir