Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 15. september 2018 15:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Watford og Man Utd: Young inn fyrir Shaw
Young kemur inn fyrir Luke Shaw. Young átti góðan leik á Vicrage Road á síðasta tímabili. Hann skoraði þá tvö mörk í 4-2 sigri.
Young kemur inn fyrir Luke Shaw. Young átti góðan leik á Vicrage Road á síðasta tímabili. Hann skoraði þá tvö mörk í 4-2 sigri.
Mynd: Getty Images
Watford og Manchester United eigast við í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn hefst 16:30 og er búið að opinbera byrjunarliðin.

Watford er með fullt hús stiga fyrir leikinn. Verður Manchester United fyrsta liðið sem stelur stigum af lærisveinum Javi Gracia?

Jose Mourinho gerir aðeins eina breytingu frá sigrinum gegn Burnley um síðustu helgi. Ashley Young byrjar í vinstri bakverði í stað Luke Shaw er meiddur. Shaw fékk höfuðhögg með Englandi í landsleikjahléinu og er ekki með í dag. Shaw er búinn að vera besti leikmaður Man Utd í upphafi tímabilsins.

Marcus Rashford er í leikbanni hjá Man Utd.

Watford byrjar með sama lið og sigraði Tottenham 2-1 í síðustu umferð.

Byrjunarlið Watford: Foster, Janmaat, Cathcart, Kabasele, Holebas, Doucoure, Capoue, Hughes, Pereyra, Gray, Deeney.

Varamenn: Gomes, Mariappa, Success, Masina, Sema, Chalobah, Femenia.

Byrjunarlið Man Utd: De Gea, Valencia, Smalling, Lindelof, Young, Pogba, Fellaini, Matic, Sanchez, Lukaku, Lingard.

Varamenn: Grant, Bailly, Mata, Martial, Fred, Darmian, McTominay.
Athugasemdir
banner