"Þetta var svolítið sérstakt. Við byrjuðum ágætlega en svo fengu Njarðvíkingar rautt spjald og þá héldu mínir menn að þetta yrði bara létt,"> sagði Ejub Purisevic, þjálfari Víkings Ó., svekktur eftir tap gegn Njarðvík í dag.
Lestu um leikinn: Víkingur Ó. 1 - 2 Njarðvík
Tapið þýðir að Ólafsvíkingar leika ekki í Pepsídeildinni á næstu leiktíð.
Eru það vonbrigði?
"Ég held að öll lið í þessari deild myndu vilja fara upp en miðað við hvernig þetta var hjá okkur í vetur, í vor, og í byrjun tímabilsins þá held ég að þetta sé bara ágætt hjá okkur. Ég held að fyrir mót hefði ég ekki verið ósáttur að vera í þessari stöðu.">
Nánar er rætt við Ejub í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir