Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 15. september 2018 18:54
Gunnar Logi Gylfason
England: Man Utd með sigur á Watford
Smalling skoraði flott mark fyrir Man Utd
Smalling skoraði flott mark fyrir Man Utd
Mynd: Getty Images
Watford 1 - 2 Man Utd
0-1 Romelu Lukaku ('35)
0-2 Chris Smalling ('38)
1-2 Andre Gray ('65)
Rautt spjald: Nemanja Matic, Man Utd ('90)

Watford tók á móti Manchester United í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Romelu Lukaku heldur uppteknum hætti í markaskorun og kom gestunum yfir eftir 35. mínútna leik.

Lukaku skoraði, eins og flestir vita, gegn okkur Íslendingum í 3-0 sigri Belga á Laugardalsvelli á dögunum.

Aðeins þremur mínútum síðar kom Chris Smalling boltanum í netið og tvöfaldaði forystu gestanna en markið var ekki af ódýrari gerðinni.

Andre Gray skoraði sitt fyrsta mark á Vicarage Road síðan í janúar þegar hann minnkaði muninn fyrir heimamenn.

Ekki var meira skorað fóru gestirnir með sigur af hólmi. Man Utd er nú með 9 stig eftir 5 leiki. Þetta var fyrsti tapleikur Watford á tímabilinu en liðið hafði unnið alla leiki sína fyrir þennan, síðast gegn Tottenham.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner