Ingvar Kale, markvörður Kórdrengja, var tekinn tali eftir sigur liðsins á Álftanesi í leik um 3. sætið í 4. deild, sem jafnframt var úrslitaleikur um síðasta lausa sætið í 3. deildinni á næsta ári.
Ingvari fannst leikurinn góður, sérstaklega fyrri hálfleikurinn.
„Mér fannst hann bara góður, sérstaklega fyrri hálfleikurinn að okkar hálfu. Vorum sanngjarnt yfir í hálfleik, 2-0."
Nú er lið Kórdrengja á leið í 3. deild en félagið er aðeins á öðru keppnistímabilinu í 4. deildinni.
Ingvar var spurður að því hvort þeir muni bæta við sig mannskap fyrir 3. deildina.
„Ég veit það ekki, það kemur í ljós. Þetta var ákveðið verkefni sem við fórum í og verðum bara að halda því áfram."
Mörg lið af landsbyggðinni munu spila í 3. deildinni á næsta ári og verður meira af ferðalögum fyrir lið Kórdrengjanna en þeir eiga að vera vanir úr 4. deildinni, en menn þar á bæ eru ekkert hræddir við það.
„Það er bara gott fyrir móralinn að kíkja aðeins út á land."
Athugasemdir