Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 15. september 2018 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Landsliðstreyja Sifjar Atla gegn Frakklandi á 1000 krónur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Árituð landsliðstreyja frá varnarnaglanum Sif Atladóttur verður seld til góðgerðarmála í happdrætti og kostar miðinn aðeins 1000 krónur. Þetta er treyjan sem Sif keppti í gegn Frakklandi á EM 2017.

Dreginn verður út vinningshafi í leiknum mánudaginn 17. september kl. 19:00. Allur ágóði rennur til Krabbameinsfélags Íslands.

Charityshirts.is stendur fyrir happdrættinu en stefnt er að því að bjóða upp á mismunandi íþróttatreyjur í hverri viku og mun allur ágóði renna til góðgerðarmála.

Aron Jóhannsson safnaði 32.000kr fyrir Barnaspítalasjóð Hringsins í síðustu viku og hafa fjórir leikmenn safnað samtals 180.000kr ásamt Charity Shirts.
Athugasemdir
banner
banner