Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 15. september 2018 19:30
Gunnar Logi Gylfason
Sarri: Hazard getur orðið sá besti í Evrópu
Eden Hazard
Eden Hazard
Mynd: Getty Images
Maurizio Sarri, knattspyrnustjóri Chelsea, segir Eden Hazard, leikmann liðsins, geta orðið þann besta í Evrópu eftir tvö ár.

„Hann getur kannski orðið besti leikmaðurinn í Evrópu á næstu tveimur árum," sagði Sarri í viðtali við Sky Sports eftir leikinn.

„Hann mun bæta sig með því að eyða minni tíma langt frá markinu."

Hazard gerði þrennu í 4-1 sigri Chelsea gegn Cardiff í dag.

Leikmaðurinn var mikið orðaður frá félaginu í sumar og var Real Madrid talinn líklegasti áfangastaðurinn en Belginn ákvað að halda tryggð við félagið sem hann hefur verið hjá síðan árið 2012.
Athugasemdir
banner
banner
banner