Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 15. september 2019 11:00
Magnús Már Einarsson
Líkleg byrjunarlið hjá Breiðabliki og Val
Fanndís Friðriksdóttir mætir gömlu félögunum í kvöld.
Fanndís Friðriksdóttir mætir gömlu félögunum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðný Árnadóttir.
Guðný Árnadóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik og Valur mætast í kvöld í hálfgerðum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í Pepsi Max-deild kvenna. Bæði lið eru taplaus fyrir leikinn á Kópavogsvelli klukkan 19:15 í kvöld.

Hér að neðan má sjá líkleg byrjunarlið fyrir kvöldið. Breiðablik stillir væntanlega upp sama liði og í 3-2 sigrinum á Sparta Prag í Meistaradeildinni í vikunni.

Miðjumaðurinn Hildur Antonsdóttir spilaði hálftíma í þeim leik eftir þriggja vikna fjarveru vegna meiðsla. Hildur gæti komið inn á miðjuna en Fótbolti.net tippar á að hún byrji á bekknum.

Valur hefur spilað mikið á sama byrjunarliði í sumar og fátt óvænt verður í liðsuppstillingunni þar samkvæmt spá Fótbolta.net.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner