Fotbolti.net
15.09.21 - 22:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Pétur Theódór: Draumurinn að enda þetta svona

Pétur skoraði fernu.

Pétur skoraði fernu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Lengjudeildin
„Þetta var frábær hálfleikur. Þetta er örugglega besti hálfleikurinn okkar í sumar," sagði Pétur Theódór Árnason, sóknarmaður Gróttu, eftir 8-0 sigur á Aftureldingu.
Pétur er þar að tala um fyrri hálfleikinn. Grótta var 6-0 yfir að honum loknum og hafði Pétur þá skorað fernu.

„Menn voru klárir í þetta. Við ætlum að enda þetta mót vel. Það er einn leikur eftir núna."

„Þetta var ótrúlega góð frammistaða hjá okkur og virkilega skemmtilegur leikur."

Pétur gengur í raðir Breiðabliks eftir tímabilið. Hann var að spila sinn síðasta heimaleik fyrir Gróttu í kvöld. „Það var nokkurn veginn draumurinn að enda þetta svona."

Hægt er að sjá allt viðtalið hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.