Arda Turan gæti fengið þungan fangelsisdóm en hann hefur verið ákærður fyrir að ráðast á tyrkneska poppstjörnu, Brekay Sahin, á næturklúbbi.
Saksóknari fer fram á tólf og hálfs árs fangelsi en Turan er sakaður um kynferðislega áreitni, líkamsárás og fyrir að hafa verið með ólögleg vopn á sér.
Saksóknari fer fram á tólf og hálfs árs fangelsi en Turan er sakaður um kynferðislega áreitni, líkamsárás og fyrir að hafa verið með ólögleg vopn á sér.
Turan, sem er 31 árs, er samningsbundinn Barcelona en hann gekk í raðir félagsins fyrir þremur árum frá Atletico Madrid.
Hann náði sér ekki á strik hjá Börsungum og var lánaður til Basaksehir í Istanbúl.
Í maí var Turan dæmdur í sextán leikja bann í tyrknesku deildinni fyrir að hrinda aðstoðardómara í leik.
Turan á 100 landsleiki að baki fyrir Tyrkland.
Athugasemdir